25. nóvember 2008 klukkan 17:29
Helgin var býsna athyglisverð. Á laugardag var Dagsverk númer 13 í röðinni. Fyrir þá sem ekki vita er það einn dagur á hverju ári sem er tileinkaður misgáfulegum athöfnum átta manna hóps úr ML og hefur þessi hefð haldist óslitin síðan árið 1996. Skemmtileg hefð, góð hugmynd en misjafnlega vel heppnuð engu að síður. Dagsverkið í ár fer ekki í neina annála en var gott að mörgu leyti. Auðvitað er alltaf gaman að hitta þennan hóp en svona miðað við vináttu okkar hlýtur að vera leitun að hóp sem er jafn latur að hittast.
Þórður Freyr sá um Dagsverkið þetta ár og var búinn að skipuleggja fína dagskrá. Eftir morgunmat á Hótel Loftleiðum keyrðum við austur fyrir fjall og stoppuðum á æskuheimili hans, Kálfhóli á Skeiðum. Þar átum við svo hádegismat, saltað hrossakjöt, og Egill bróðir hans ljóstraði óvart upp næsta dagskrárlið bróður sínum til mikils ama. En það var heimsókn í Ölvisholt þar sem eitt af fimm brugghúsum landsins er. Þar var tekin hálfgerð vísindaferð. Við fengum leiðsögu um brugghúsið, smökkuðum helstu tegundir en þeirra helsta tegund er Skjálfti sem er virkilega góður bjór.
Eftir þessa skemmtilegu heimsókn keyrðum við aftur í bæinn og töluðu menn ekki um annað en bjór á leiðinni og hvernig væri best að malta bygg. Þar fórum við í keilu og því næst í sund. Eftir það var Stefán Ari búinn að græja veislu í húsakynnum S. Helgason steinsmiðju en hann er framkvæmdastjóri þess fyrirtækis. Við borðuðum þar og var maturinn virkilega góður. Fram að þessu hafði Dagsverk númer 13 verið vel heppnað. En stígandinn eftir það var lélegur og þá aðallega vegna þess að menn höfðu bara áhuga á að ræða pólitík og efnahagsmál og þá meina ég ekkert annað! Við þessar umræður fóru menn frekar í vont skap. Klukkan 03.00 um nóttina áttaði ég mig á því að ég var búinn að sitja undir hundleiðinlegum samræðum í sjö klukkutíma. Það er fjandi mikið af leiðindum. Dagsverkið 2008: Skemmtileg dagskrá, góður félagsskapur en einhæfar og leiðinlegar samræður undir lokin. Tvær og hálf stjarna.